Stefna og starfsemi DiMar er að efla verslun og þjónustu á Íslandi, hvort heldur sem er full eignaraðild eða eignahlutur í slíkri starfsemi hér á landi.
Í dag rekur DiMar Lystadún-Marco og Vogue í Reykjavík, á Akureyri og á Egilsstöðum, ásamt Sólargluggatjöldum í Reykjavík. Jafnframt rekur DiMar framleiðslu og innflutningsdeild fyrir verslanir sínar.
Öll dótturfyrirtæki DiMar eru rekin sem sjálfstæðar einingar og hafa ólík rekstrarform og mismunandi þjónustustig.
Hlutverk DiMar er að veita fyrirtækjum sínum aðhald og finna sameiginlegar leiðir til að lágmarka rekstrakostnað og auka tekjumögleika. Á þennan hátt eykst samkeppnisstyrkur og þjónustustig verður sveigjanlegra, auk þess sem verðlag til viðskiptavina batnar til muna.