
Pétur Snæland h.f. var stofnað 1949 og hóf framleiðslu á 100% Latexi fyrir rúmdýnur, kodda o.s.frv. Vegna stríðsástands í Indó-Kína 1968 var framleiðslu á Latexi hætt, en í stað þess var hafin framleiðsla á Polyurethansvampi. Í báðum tilfellum var fyrirtækið meðal þeirra fyrstu í Evrópu að framleiða þessar afurðir. Framleiðsla og afgreiðsla fór fram að Vesturgötu 71 og síðar að Suðurströnd á Seltjarnarnesi. Verslun var rekin að Síðumúla 33 og flutti að Skeifunni 8 árið 1986.
Lystadún h.f. sem hóf rekstur 1956 í þeim tilgangi að flytja inn svamp frá Lysthager a.s. í Danmörku til framleiðslu á rúmdýnum o.s.frv. með niðurskurði á blokkum. Síðar flutti fyrirtækið einnig inn svamp og latex í sama tilgangi frá Dunlopillo í Englandi. Fyrirtækið sameinaðist Pétri Snæland h.f. að Skútuvogi 13 árið 1991 og nefndist fyrirtækið eftir það Lystadún-Snæland ehf. og voru aðalstöðvar þess að Skútuvogi 13, 104 Reykjavík.
Lystdún-Snæland ehf. var rekið með óbreyttu sniði fram í oktober 2001 en þá keypti það húsgagnaverslunina Marco í Mörkinni 4 og flutti þá um leið alla starfsemi sína þangað.
Marco var í upphafi stofnað í þeim tilgangi að flytja inn net og veiðarfæri frá Japan árið 1956. Síðar eða árið 1987 hóf Marco rekstur með húsgagnaverslun og sérhæfði hún sig í Amerískum húsgögnum. Marco og Lystdún-Snæland sameinast þann 1 október 2001.
Lystadún-Marco er þjónustuverslun sem sérhæfir sig í öllu sem varðar hvíld. Þjónustustig er hátt í Lystadun-Marco og leitast er við að sýna fagleg vinnubrögð og fá aðstoð sérfræðinga við lausn erfiðra verkefna ef þurfa þykir.
Lystadún-Marco setur viðskiptavininn í öndvegi og tryggir honum stöðug gæði á sanngjörnu verði. Lystadún-Marco selur ekki ótrygg gæði.Markmiðið er, að veita góða þjónustu þannig að viðskiptavinurinn fari ánægður og sjái ástæðu til að koma aftur. Starfsfólk Lystadún-Marco skal hafa góða vöruþekkingu og vera þjálfað í samskiptum við viðskiptavini.
Deildar- og sölustjóri: Halldór Snæland
Heimilisfang: Mörkinni 4, 105 Reykjavík
Heimasíða: www.lystadun.is
Sími: 5333500
Fax: 5333510
Opnunartími Mörkinni 4, Reykjavík:
Mánudaga - Föstudaga: 10:00 - 18:00
Laugardaga: 11:00 - 16:00 (11-14 í júlí og ágúst)
Opnunartími Hofsbót 4, Akureyri:
Mánudaga - Föstudaga: 10:00 - 18:00
Laugardaga: 11:00 - 14:00 (lokað á laugardögum í júní, júlí og ágúst)