
Sólar gluggtjöld hafa verið leiðandi í framleiðslu og sölu gluggtjalda í yfir hálfa öld. Edwin Árnason eldri, stofnaði fyrirtækið 1946 og framleiddi fyrirtækið þá ál- og trérimlatjöld að Lindargötu 25. Fyrirtækið hóf framleiðslu strimlagluggatjalda árið 1970, hið fyrsta á Íslandi.
Fyrirtækið bætti smá saman við framleiðslu, s.s. rúllutjöldum, sólarfilmum, plíserðum gluggatjöldum, brautum og stöngum, nú síðast hefur fyrirtækið bætt gluggatjaldaefnum við vöruúrvalið. Árni, sonur Edwins, tók við rekstrinum 1977 og stýrði því þar til sonur hans Edwin Árnason tók við sem framkvæmdastjóri 1998, þó Árni héldi áfram að starfa við fyrirækið.
Fyrirtækið hefur allt frá upphafi verið sterkt á verktakamarkaði (fyrirtæki og stofnanir) jafnt sem á smásölumarkaði.
Árið 2005 tók Valdimar Grímsson við rekstrinum og starfa 13 manns við fyrirtækið nú, verslun og verksmiðja er til húsa að Skeifunni 11.
Sölu- og deildarstjóri: Hjörtur Hoffmann
Heimilisfang: Skeifunni 11, 108 Reykjavík
Heimasíða: www.solar.is
Sími: 5348500
Fax: 5348501
Opnunartímar:
Mánudaga - Föstudaga: 10:00 - 18:00
Laugardaga: 11:00 - 15:00 (lokað á laugardögum í júní, júlí og ágúst)