
Hjónin Hólmfríður Eyjólfsdóttir og Jón Einarsson stofnuðu Vogue í marsmánuði 1952. Ætlunin var að reka verslun og saumastofu. Jón var þekktur athafnamaður og einn af forsprökkum K.R.O.N, hann var einn af stofnendum ORKU og Tryggingar hf og forstjóri beggja félaganna.
Vogue var fyrst til húsa á Bergstaðarstræti 28 og voru starfsmenn þá 4 talsins. 1954 flutti verslunin á Skólavörðustíg 12 og var þar verslað með efni, snið og hverskyns tillegg til heimasaums.
Vogue hefur rekið margar verslanir víðsvegar á höfuðborgarsvæðinu og einnig út á landi. Vogue rak verslun í Hafnarfirði, Selfossi, Akureyri, Keflavík, Glæsibæ, Eiðistorgi, Kringlu, Laugavegi, Mjódd og Skeifu og voru verslanirnar flestar 6, auk heildverslunar.
Framkvæmdastjórar félagsins hafa verið þeir Jón Einarsson, Magnús Jónsson og Eyjólfur Jónsson. Núverandi framkvæmdastjóri og eigandi er Valdimar Grímsson og eru nú reknar 2 verslanir, í Mörkinni 4 og við Skipagötu á Akureyri. Valdimar sameinaði verslanirnar Lystadún-Snæland og Vogue.
Vöruframboð fyrirtækisins er nú auk fataefna og fylgihluta, allar gluggatjaldalausnir og einnig rimla- og rúllutjöld, bútasaumur og gjafavörur og leggur fyrirtækið áherslu á að vera með heildarlausnir á vörusviði sínu. Fyrirtækið rekur framleiðsludeild í tengslum við gluggatjaldalausnirnar, farið er heim til viðskiptavina og tekin eru mál, þá frameitt og loks kemur trésmiður og setur tjöldin upp. Þá rekur fyrirtækið heildsölu, þar sem bæði endursöluaðilum, framleiðendum og verktakamarkaði er þjónað.
Sölu- og deildarstjóri: Edda Bára Róbertsdóttir
Heimilisfang: Mörkinni 4, 105 Reykjavík
Heimasíða: www.vogue.is
Sími: 5333500
Fax: 5333510
Opnunartími Mörkinni 4, Reykjavík:
Mánudaga - Föstudaga: 10:00 - 18:00
Laugardaga: 11:00 - 15:00 (lokað á laugardögum í júní, júlí og ágúst)
Opnunartími Hofsbót 4, Akureyri:
Mánudaga - Föstudaga: 10:00 - 18:00
Laugardaga: 11:00 - 14:00 (lokað á laugardögum í júní, júlí og ágúst)